|
Byrjendanámskeið fyrir leikskólakennara |
|
fimmtudagur, 28 maí 2009 |
|
Landskrifstofa eTwinning-áætlunar ESB heldur Byrjendanámskeið fyrir leikskólakennara 10. júní nk. á Háskólatorgi (við hliðina á aðalbyggingu HÍ). Námskeiðið hefst stundvíslega kl 8:30 og stendur til 12:00
Ekkert þátttökugjald.
Efni:
* Kynning á eTwinning-áætlun ESB og verkefnavinnu * Kynning á eTwinning-verkefnum við íslenska leikskóla * Kennsla í grundvallaratriðum eTwinning, s.s. Leit að samstarfsaðila, stofnun verkefnis, notkun rafrænu kennslustofunnar TwinSpace
Skráningarfrestur á námskeiðið er til og með 2. júní nk. Skráning fer fram rafrænt á þessari slóð: http://ask.hi.is/id/1027032
HVAÐ ER eTWINNING? eTwinning er áætlun ESB um rafrænt skólasamstarf (þar sem kennarar og nemendur vinna einföld verkefni með samstarfsskólum í Evrópu yfir Internetið). Nánari upplýsingar á eftirfarandi slóðum:
www.etwinning.is
www.etwinning.net
|
|
|
Aðalfundur 3f var síðdegis í gær |
|
fimmtudagur, 28 maí 2009 |
|
Aðalfundur 3f var haldinn 27. maí í Borgarholtsskóla. Fundurinn var fámennur en góður engu að síður. Á dagskrá voru venjuleg aðalfundarstörf en síðan kynntu Ólafur Sigurðsson skólameistari og Ari Halldórsson, kennslustjóri lista- og fjölmiðlasviðs starfsemi skólans. Litlar breytingar urðu á stjórn félagsins. Sólveig Friðriksdóttir (formaður), Fjóla Þorvaldsdóttir, Elín Jóna Traustadóttir og Jóhanna Geirsdóttir sitja áfram í stjórn. Björn Sigurðsson hætti en Sigurður Fjalar Jónsson kennari í FB m.m. var kosinn í hans stað. Sjá skýrslu formanns um starf félagsins síðasta árið. |
|
|
The Scottish Learning Festival |
|
sunnudagur, 05 apríl 2009 |
The Scottish Learning Festival verður haldin í 23-24 september í ár í Glasgow. Dagskráin hefur ekki enn verið birt í heild á heimasíðunni. Það hefur verið staðfest að Prófessor Carlina Rinaldi sem helst er þekk fyrir að vera aðalsérfræðingur í Reggio Emilia stefnunni mun vera meðal aðalfyrirlesara. Að sögn Skota sem ég er í sambandi við eru kennarar þar í landi mjög spennir fyrir því að heyra hennar fyrirlestur. Andreas Schleicher kennslufræðingur hjá OECD mun einnig verða einn af aðalfyrirlesurum og svo hefur verið gengið frá því að frá Ástralíu komi Graham Maxwell sem er sérfræðingur í hvers kyns mati á skólastarfi muni fjalla um það efni á hátíðinni. Hann er prófessor við Háskólann í Queensland í Ástralíu. Ég held það sé óhætt að hvetja íslenska kennara til þess að skoða þann möguleika að heimsækja hátíðna. Stutt og einfalt að fara til Glasgow. |
|
|
Vistfræðilegt fótspor mannsins |
|
laugardagur, 04 apríl 2009 |
Vistfræðilegt fótspor (Ecological Footprint) er hugtak sem notað er til að skýra stærð þess haf- og landsvæðis sem maðurinn þarfnast með tilliti til þeirra auðlinda sem hann nýtir og til að losna við úrgang. Þetta er sú mælieining sem við getum notað til þess að komast að því hvað við mennirnir þurfum/notum mikið af landi á líftíma okkar, bæði til að koma á móts við neyslu og til að taka á móti sorpinu sem af okkur hlýst, miðað við þá tækni sem nútíminn bíður upp á við öflun og förgun. Mælieiningin sýnir hvað við skiljum eftir okkur og er umfram sjálfbært líf, sem væri í þessu samhengi sama sem núll eða enginn hektari lands.
|
|
Nánar...
|
|
|
|
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 5 Næsta > Endir >>
|
| Niðurstöður 1 - 9 af 41 |